Devil´s Haircut
Ég var að sækja mér um skiptinám.
Svoldið svona sein að fatta, hélt einhvernvegin að það væri of seint, en það rennur ekki út fyrr en á sunnudaginn og ég var að senda það í morgun.
Þurfti að setja 3 borgir og áhugasvið í priority.
Mér er nú slétt sama um hvaða áhugsvið hvaða borg var undir, ég er ennþá opin fyrir öllu og auk þess er þetta allt saman undir einhverju sem mér þykir spennandi.
En listinn er semsagt svona
1.Prag
2.Barcelona
3.Helsinki
Ég gat seriously valið milli allra stærstu borga Evrópu en valdi þessar af því a)mér finnst þær mega kúl og b) ég hef aldrei komið til þeirra og mér finnst það úber spennandi. Ég setti ekki Berlín þó það sé borgin mín vegna þess að ég efast engan veginn um að ég eigi einhverntíman eftir að flytja þangað. Langaði að nota þetta tækifæri kannski frekar í aðra staði.
Ég spurði hvað væri vinsælast og hvert væri erfiðast að komast, konan sagði nokkrar borgir sem mér finnst bara bull t.d. London. Af hverju ætti maður að fara þangað þegar maður getur farið til Istanbúl.
Istanbúl og Helsinki voru í baráttu hjá mér. Mikilli.
Held að maður hafi kannski svoldið vitlausa mynd af Tyrklandi eftir Sophiu Hansen og jesús minn ekki hjálpar það að hafa búið hér í 4 ár, Danir eru náttla ALGJÖRIR rasistar - en ég held að Istanbúl sé svakaleg borg. Ég ætlaði líka ekkert að fara að láta barna mig þarna niður frá.
Nú ætla ég að hætta að tala um þetta því ég er sjálf farin að efast um að ég hafi valið rétt...
Fannst samt svoldið snemmt eitthvað að fara strax núna í haust þannig að ég sótti um fyrir spring semester 2010...
Annars gengur allt vel, ánægð í skólanum, subjektivity and learning fyrirlestrarnir eru frábærir, aðallega af því báðir kennararnir eru svo gáfaðir að það heyrist á öllu sem þeir segja manni frá. Vita virkilega um hvað þeir eru að tala. Mér finnst alltaf skemmtilegra og skemmtilegra að heyra svona ofboðslega gáfað fólk segja frá.
Ekki á neinn cocky hátt, en bara að maður virkilega FINNI hvað þeir eru klárir.
History and Culture sem ég var búin að hlakka svo til að byrja í er hins vegar bara ekki búin að vera skemmtileg hingað til. 2 danskar konur sem eru ekki alveg að virka, mjög óöruggar með sig og það er bara ekki nógu gott, maður finnur það um leið og það sem þær hafa að segja skilar sér ekki nógu vel útí salinn...
Er svo að gera verkefni um The Satanic Verses með frábæru fólki. Já það má alveg kalla mig heimska en ég hafði bara ekki HUGMYND um allt þetta fjaðrafok sem varð útaf þessari bók, höfundurinn búinn að vera í útlegð og undir lögregluvernd í 20 ár og fólk sem þýddi hana yfir á önnur tungumál drepin eða pynt.
Komin með ógeð á Bankerat. Þetta er ekki meira en vinna, ég fer nákvæmlega ALDREI þangað núna nema ég sé að fara í vinnuna.
Það er kannski ósköp eðlilegt, þetta ER jú bara vinna, en mjög sorglegt miðað við hvað þetta var fyrir mér.
B
ý hjá Hildi og Ágústi núna og er búin að gera í viku þar sem ég (eða eiginlega Hildur ) framleigði íbúðina mína til suður ameríkana. Þau eru 5 þarna núna og ekki alveg kannski mikið pláss fyrir mig þannig að Hildur buisness kona kom með þessa frábæru uppástungu.
Ofsa gott. Svoldið eins og að eiga fjölskyldu aftur. Og don´t get me started á þessu barni þeirra. Það er sko alveg búið að taka hana í sátt. Ekki hægt annað, hún er óendanlega sæt og vekur mig með SÓLskinsbrosi og söng á morgnana.
Búin að vakna glöð og hamingjusöm alla vikuna.
Ég ætla að fara að hitta Sanne og Hildi. Hjálpa Sanne að æfa textann sinn, hún er að fara í 2. prufu í leiklistarskólann í Aarhus eftir viku...
Hafið þið það sem ALLRA allra best.
